Ég er fædd 1972 og er textílhönnuður og myndlistarmaður.
Textílhefðin hafi umlukið mig alla ævi, og kemur oft við sögu í mínum verkum. Sem barn var ég með annan fótinn inní verslun Íslensks Heimilsiðnaðar og má sjá áhrif þess í mörgum verkum mínum. Ég skoða íslenska arfleið og hef velti upp spurningunni eins og "Hvað er íslenskt?"
Það er þó ekki það eina sem hefur haft áhrif á verk mín, ég tel að enginn sé svona óspilltur. Ævintýri hafa einnig spilað stóra rullu í mínu lífi, þar sem ég gat (og get) spilað heilar sápuóperur í kollinum á mér og þurfti nú ekki mikið að kynda undir. Klassísk ævintýri sem og áhrif frá Barbí lita verk mín á stundum.
Í verkum mínum þá nálgast ég hefðbunda hluti og tek í burt ákveðna þætti í leit minni að ímynd og uppruna.Vangaveltur eins og vægi útlits og innihalds, og spurningin hvort eitt styðji endilega annað.