klikka á mynd til að lesa örstutt skeyti til þjóðar.


fjöllistamaðurinn©Ketill Larsen

Á hendinni: höfundur: Ketill Larsen
.................................................................................................................
Afritað af hendi Ketils á kaffihúsi Iðu þann 22. des. 2006

Konan nikkaði hattinum (ástæðan er að hún var með vatn í hattinum.)
Hún kinkaði (kolli með hattinum) pollinum.
Það skvettist á þá sem nærri voru.

Maður = ostur = stytta. Sumir eiga styttur úr marmara, en hann
á styttu úr osti. Annar fær ost, ost sem er með flösku innan í.
Málverk - á bak við, eða framan á hverri mynd er ljóð .

Húsið í þakinu er sundlaug, sem er "opin" þannig að birtan fellur í gegnum laugina. Inni í húsinu er garður. Veggir úr torfi og grjóti. Borghleðsla, portveggir.

efst á síðu
forsíða

fjöllistamaðurinn©Ketill Larsen

Á hendinni: höfundur: Ketill Larsen
.................................................................................................................
Afritað af hendi Ketils á kaffihúsi Iðu þann 6. des. 2006

Lítið á hendinni í dag, en þar er fallegt sýnishorn til fjalla og stranda – það eru fjöll og lítil vík. Í víkinni er lítill bátur og lítill kofi. Fyrir utan kofann stendur maður og horfir út á hafið. Ef hafmeyja skyldi vinka honum af skerinu milli þess að hún spilar á hörpu sína og syngur.
Leyndarmál ..(um jólasveina)

Orð dagsins ekki í lófa mannsins: Þegar á að lyfta sér upp þá fá sumir sér vín, sumir fara að syngja og sumir hringja.

efst á síðu
forsíða

Á hendinni: höfundur: Ketill Larsen
.................................................................................................................
Afritað af hendi Ketils á kaffihúsi Iðu þann 27. nóv. 2006

Canada = samband íslands og kanada.
Skiltahúsið = maður sem smíðar hús bara úr skiltum sem hann finnur.
Komumaður á kameldýri (Sahara).
Björt framtíð.
Valdimar
, konan hans og ég.

efst á síðu
forsíða

Á hendinni: höfundur: Ketill Larsen
.................................................................................................................
Afritað af hendi Ketils á kaffihúsi Iðu þann 21. nóv. 2006

Faðir vor .....
Græni hatturinn = breytist í grænmetisgarð.
10 álfhólar = garðskreyting.
Kæri vinur ef þig langar að fara í útilegu með elskunni þinni við lítinn læk, að vetri, er ekkert annað en að tjalda stóru tjaldi utanum lítið tjald og hluta læksins. Kveikja svo á háfjallasól eða tunglsljósi, eftir því hvort er dagur eða nótt. Ekki væri verra að kveikja á hitablásara af og til. Ef rafmagn vantar á staðinn, er upplagt að fá það úr lítilli rafstöð í nágrenni fossins, sem lækurinn hefur átt að vini um aldir..
Súrefnishundur = Hundur sem ber súrefni inn á staði þar sem vantar súrefni , heilbrigt fjallaloft. Gott er að hafa hund, vélhund = menni.
Ef þú ert staddur á Íslandi er skemmtilegra að hafa íslenskan fjárhund.
Nóg er af stöðum sem að heilbrigt loftslag ræður ekki ríkjum. Í staðinn fyrir hundinn mætti hafa opnanlega glugga, ég tala ekki um á sjúkrahúsum.
Eins og flestir vita eru loftræstitæki því verri eftir því sem þau eru dýrari.
Ef Florens Nightingale væri komin aftur, myndi hún benda á að það væri nauðsynlegt að þvo almennilega þessi lofthreinsitæki og kerfi. Eins og flestir muna þá uppgvötaði hún nauðsyn þess að þvo og sótthreinsa skurðartól frá sjúklingi til sjúklings.
Það er ekki hægt að gleyma því að matsveinn sem væri að spara fyrir húsbónda sinn og notaði sama uppþvottavatnið árum saman, myndi ekki stuðla að heilbrigði frekar en loftræstitækin, frekar en lofthreinsitækin óhreinu.
Grænavatn við Mývatn = hugmynd að sögu um útilegumann í nágrenninu.
Listrænir jólasveinar = hugmyndir.
Maður finnur fallega konu á reki.
 
Orð dagsins í lófa mannsins: Ræktaðu hamingjuna eins og garðinn þinn og vertu á guðs vegum.

efst á síðu
forsíða

fjöllistamaðurinn©Ketill Larsen