
Ketill Larsen er af flestum kunnur, sem eru reglulega á ferðinni í miðborg Reykjavíkur. Það má segja að maðurinn sé eitt af kennileitum borgarinnar. Hans sterka nærvera er hlý, en ekki krefjandi. Margir þekkja hann sem sögumanninn og einnig má heyra söng hans hljóma þegar sá gállinn er á honum.
Sögurnar hans Ketils eru oft nokkuð súrrealískar. Hann tvinnar þá gjarnan minningum sínum og annarra saman við það sem er að gerast hér og nú, og kryddar síðan allt saman með hugarflugi sínu. Hann hefur það gjarnan að orði eftir sögustund "þessu skaltu ekki trúa" eða "þetta var nú skáldskapur" því hann vill ganga veg sannleikans, þó hann bregði óhræddur á leik á góðri stundu.
Ketill er ötull myndlistarmaður og vinnur myndir sínar heima og heiman. Þar opnar hann fyrir okkur ævintýralendur sínar sem á margan hátt tóna við sögurnar.
Ekki má sleppa því að líta aðeins á fjöllistamanninn. Margir gjörningar hans eru enn á teikniborðinu, en marga þeirra hefur hann framkvæmt.
Leikarinn Ketill Larsen hefur komið víða við, erlendis og hérlendis og er hann vel kunnur mörgum fyrir ýmsa karaktera, sem hann hefur ljáð líf í gegnum tíðina.
Hér á þessu vefsvæði mun Ketill leyfa okkur að gægjast í ýmislegt í farangri sínum, þegar fram líða stundir.