forsíða :
  texti :Jón Mýrdal :
  askasleikir :
  á hendinni

vinstri klikka til að sjá hvað skráð er í hendi mannsins


fjöllistamaðurinn©Ketill Larsen



Örstutt skeyti til þjóðarinnar :
höfundur: Ketill Larsen

..........................................................................................................................
Skráð á Mokka 17.nóv. 2008.

 

Fyrst og fremst að vera bjartsýn og horfa björtum augum til framtíðar. Vera glaður innan í sér, eins og litli drengurinn sagði sem var svo hamingjur: Ég er svo glaður innan í mér. Hollur er heimafenginn baggi. Til dæmis að baka brauðið sitt heima. Vinir geta tekið sig saman, bakað saman og syngja, segja grínsögur, á meðan brauðið bakast. Svo má taka slátur. Á flestum heimilum eru stofublóm. Á meðal blómanna má hafa nytjajurtir eins og til dæmis gulrætur, radísur, karsa, arfa (haugarfa), agúrkur og tómata og svo framvegis. Tilbreytingin er hverjum manni nauðsynleg. Tilvalið er að breyta til og fara af og til í stutt ferðalag, til dæmis í einn eða tvo sólahringa. Það þarf ekki að vera langt, allt frá því að vera gönguferð og að gista í skíðaskála eða bílferð og gista hjá einhverjum góðum bónda og hans húsfrú í sveitasælunni. Íþróttaandinn lifi, áfram að markinu en allt í hófi, því að of mikið má af öllu gera. Og ekki má gleyma Guði.


..........................................................................................................................
Skráð á kaffihúsi Iðu þann 21. nóv. 2006.

Hvernig á að rækta upp hálendið.

Á vorin er sáð lúpínufræjum og melgresi úr flugvélum.
Svo er hún bara slegin þegar hún er búin að gera sitt gagn. Og þá getum við ráðið hvaða plöntur við viljum hafa á hálendi framtíðarinnar. Húsdýraáburður blandaður saman við þang og þara er framúrskarandi áburður.
Ekki má gleyma fjársjóðnum sem er fólginn í rotþróm landsmanna (spyrjið bara kínverja). Hann má flytja í sérstökum tankflugvélum og má þá rækta hvers konar grænmeti á þeim svæðum.

Einnig má rækta til dæmis birki og víði, lambagras, fjallagrös, mosa, skófir, hvönn og ég tala ekki um bambus. Í suðuameríku vex bambus við svipaðar aðstæður og eru á hálendinu. Það eru til ótal tegundir af bambus.

Svo má heldur ekki gleyma smáranum. Hann framleiðir köfunuarefni ekki bara fyrir sig heldur fyrir nágranna sína.

Að ógleymdum fjögurra laufa smára, þá verður hver dagur óskastund.

Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá höfundi.

efst á síðu
forsíða

 

fjöllistamaðurinn©Ketill Larsen