Eidfjord snemma vors.
Í húsunum númer sjö við þjóðveginn númer sjö, umkringd sjö fjöllum eða fleiri. Við eitt af höfunum sjö.
Fyrir innan gluggann horfum við á fjöllin sem umlykja þessi litlu hús. Úti spegla þau sig, ásamt mér í gluggum húsanna. Nálægð fjallanna er yfirþyrmandi en um leið traustvekjandi. Þau voru hér áður en við komum og þau verða hér eftir að við förum.