![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Landsins stærsti símaklefi með kaffivél. |
Símaþingið var samvinna mín og Ævars Kjartanssonar í Víðsjá RÚV og í staðin fyrir afnot gesta minna af hljóðstúdíói þeirra Rúv. manna, þá daga sem þingin fóru fram, nýttu Ævar og hans fólk sér að hluta efni þinganna í útsendingar sínar. Símaþingin var hægt að heyra á Mokka í beinni í ráðstefnukerfi frá Póst og síma, er þau fóru fram og var þá spyrill dagsins í hljóðstúdíói í RÚV í Háaleiti. Viðmælandi spyrils var á sinni skrifstofu eða þeim stað sem hentaði honum, með sinn síma. Aðstoðarfólk sem spyrlar buðu til að taka þátt í þessum litlu símaþingum, var statt á Mokka tengt inn á samtalið. Með hátölurum gafst gestum á Mokka færi að fylgjast með. þeir myndlistamenn sem nýttu sér aðsöðuna og viðmælendur þeirra: 11.02 Haraldur Jónsson ræddi við óþekkta myndlistarmanninn. 13.02 Guðný Magnúsdóttir (galliríisti) ræddi við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, borgarstjóra. 15.02 Kristinn E. Hrafnsson ræddi við Friðrik Sófusson, fjármálaráðherra. Særún, Dóra, Jóní, Sigrún og Helga ræddu við Aðalstein Ingólfsson, listfræðing. 22.02 Harpa Björnsdóttir ræddi við Ólaf Gíslason, litstfræðing og blaðamann. 25.02 Guðrún Helgadóttir ræddi við Gerði Óskarsdóttur, fræðslustjóra. 27.02 Þorvaldur Þorsteinsson ræddi við fólkið í símaskránni. 28.02 Rúrí ræddi við Pétur Arason galleríista 01.03 Hannes Lárusson ræddi við Sigurjón B. Hafsteinsson 06.03 Anna Líndal ræddi við Guðrúnu Ágústsdóttur |
24 símar voru settir upp á veggina og símstöð komið fyrir í kjallaranum. Hægt var að hringja í vini og kunningja. Verkið bauð einnig upp á að það væri notað til umræðu um stöðu myndlistar og var listamönnum boðið að nýta sér þessa aðstöðu er skapaðist. Sjá nánar neðar á síðu.... |
Það er síminn til þín ! |
Cafe Mokka, Reykjavík. |