| Hafnarborg, Hafnarfirði |
| Optimism |

Bjartsýni er eitt að því sem oft fylgir því sem ókomið er. Egg er eitt að undrum náttúrunnar fullskapað, heill heimur, hvert og eitt fyrir sig. Inni í þeim er lífið. Væntingar fylgja hverju sóknarfæri í náttúrunni og aðlögun er eitt af því sem er flestum skepnum jarðarinnar gefið í vöggugjöf. Stundum virðist allt finna jafnvægi. En mannskeppnan virðist oft eiga erfitt í þessum náttúrulega dansi. Er lítið líf kviknar er oftar en ekki um örlíf að ræða. Víða hér í heimi eru aðstæður þannig að það er enginn möguleiki fyrir nýtt líf og eru það manngerðar aðstæður sem ráða mest þar um. Eggin verða fúl, skepnur jarðar ófrjóar, en samt er ekki hægt annað en að vona. |
