Forsíða  
1993  
1994  
1995  
1996  
1997  
1998  
1999  
2001  
2002  
2003  
2005  
2006  
2007  
2008  
2009  
   
   

 

magneaa@hotmail.com
Kunstforeningen i Trondheim, Norge.
,,Æðasláttur ."
<<
Rýmið er fyllt af hljóðum líðandi stundar, á lágværan en krefjandi hátt sem minnir á rennandi vatn. Úrverk með sekúnduvísum ganga dag eftir dag, ár eftir ár en mæla þó ekkert og sýna einungis þann stað sem þeir eru staddir á.

Í kössunum eru tímatöflur um flóð og fjöru frá öllum opinberum höfnum í Noregi árið 1994. Þetta eru upplýsingar sem úreldast um leið og þær verða gildar.

Við geymum flest mikið magn af upplýsingum. Ef til vill blundar hjá okkur von um að það verði til þess að við náum að skilja örlítið betur okkar tilveru, sem við yfirleitt höfum litla eða alls enga stjórn á.

Að lokum verður þó að henda öllum gömlum upplýsingum þar sem þær missa gildi sitt er nýrri og trúverðugri upplýsingum er safnað saman og þær þarf einnig að geyma. Sekúndurnar líða áfram og umfaðma allt sem við gerum, endalaust.
134 klukkuverk með sekúnduvísum, sjávarfalla tímatöflur fyrir árið 1994.