Texti fyrir símaþjónusta heilags anda. |
,,.í Hafnarborg í Hafnarfirði 03. til 25. júní 1995. |
|
||||||
Styðja á: Einn - til að fá samband við heilagan anda : Styðja á: Fjóra - ef þú vilt tjá þig um þessa tilraun : Styðja á: Fimm - til að fá upplýsingar um kaffi : Styðja á: Sex - til hugleiðingar : |
(Þema sýningar var Andinn ) Um verkið mitt: Í dag get ég haft samband við hvern sem er, hvar sem er. En get ég haft samband við æðri máttarvöld? Erum við eitthvað nær svörum lífsgátunnar með allri þeirri tækni sem við höfum aðgang að? Er einhver þörf á sambandi? Er ekki nægilegt fyrir okkur, á sama hátt og forvera okkar, að krjúpa í auðmýkt og tilbeiðslu og viðurkenna vanmátt okkar, gagnvart krafti og leyndardómum almættisins? Í verki mínu hér velti ég fyrir mér þremur möguleikum, að ná sambandi við heilagann anda, að hann birtist eða að fá staðsetningu hans. Ég sótti fyrirmynd í þjónustusíma bankanna og farsímaþjónustu. Venjulegur tónvalssími var settur upp í sýningarsalnum. Úr öllum tónvalssímum í heiminum var hægt að ná sambandi við tölvuna og símsvarann sem voru staðsett í Reykjavík.. Þar með var sérhannaður þjónustusími heilags anda orðinn að raunveruleika. Kaffið á Kaffistofunni í Hafnarborg tilheyrði okkar veruleika og er það eina sem ég sjálf gat látið ganga upp. Tölvuprógrammið var unnið af Friðriki Smára Ásmundssyni og símsvörunar prógrammið var unnið af AdCall, auglýsingarsíminn h.f.. Verkið var virkt til ágústloka 1995 og það var mikið hringt í það. |
|||||