Í hljóðlátri nálægð við okkur standa víða gömul tré. Á margan hátt styrkja þau okkar tilveru. En okkar lífshættir ganga á þessa náttúrulegu auðlind eins og svo margar aðrar.
Niðurhakkaður skógur er margnýttur, meðal annars til að bera okkur dag hvern ýmsan boðskap. Í póstkassa okkar koma dagblöðin og ýmiss annar póstur. Línurnar eru lagðar fyrir okkur dag eftir dag en mest af því sem borið er til okkar á pappír, er rusl sem má missa sín.
Í sex mánuði klippti ég niður dagblöð í litlar skífur, tvo og hálfan cm í þvermál. Þessar skífur þræddi ég upp á járnstangir 220cm á hæð og skilaði þeim inn í skóginn víða í kringum Karlsruhe. Þessir tilbúnu trjástofnar munu rólega sameinast umhverfinu á þeim stöðum sem ég kom þeim fyrir.
Á þennan hátt skilaði ég örlitlu broti af skóginum til baka ásamt þeim samtímaspegli sem prentaður var á blöðin.