Forsíða  
1993  
1994  
1995  
1996  
1997  
1998  
1999  
2001  
2002  
2003  
2005  
2006  
2007  
2008  
2009  
   
   

 

magneaa@hotmail.com
Nýlistasafnið, Reykjavík .
,,Samtímaspegill."
<<

Spegill spegill segðu mér allt......

Dagblöð eru borin í hús á hverjum degi og hrúgast upp í fjöll. Í þeim birtist okkur sýn á samtímann okkar á þann hátt sem hann er dreginn upp á hverjum tíma. Fyrsta blað dagsins sem sýningin opnaði fer upp á vegg og er rammað inn með gyllingu til að aðgreina það frá hinum blöðunum sem koma seinna inn í hús.

Blöðin sem koma dagana sem sýningin stendur hrúast upp á gólfinu. Rýmið allt er fyllt af seiðandi hljóðum frá tímamælum sem mæla í raun ekkert en líða áfram, sekúntu eftir sekúntu..

Á veggnum á móti geri ég sýnilegt brot af innihaldi blaðanna. Orð sem eru dregin af boðhætti sagna eru klippt út úr dagblöðum og límd upp. Hér má sjá brot af því sem fólk er að gera um allan heim og einhverjum finnst það þess virði að koma því á prent svo ég geti lesið það.