Forsíða  
1993  
1994  
1995  
1996  
1997  
1998  
1999  
2001  
2002  
2003  
2005  
2006  
2007  
2008  
2009  
   
   

 

magneaa@hotmail.com
Þjóðarbókhlaðan, Reykjavík .
,,Fyrir Magritte, II."
<<

Verkið setti ég upp á efstu hæð Þjóðarbókhlöðunnar og áhorfandinn sá tvisvar sama sjónarhornið. Annars vegar út um gluggann úr fjarlægð og hins vegar á sjónvarpsskjá þar sem vídeóvél er beint út um glugga.
Í nærmynd sést þá runni sem er á flötinni fyrir utan húsið. Vindur og ljós leika í blöðunum og áhorfandinn getur horft á runnann í nærmynd á sjónvarpsskerminum eða út um gluggan.

Sé ég það sem ég horfi á ?

René Magritte er listamaður sem heillaði mig gjörsamlega er ég kynntist verkum hans um 1985. Á yfirlætislausan hátt gerði hann sér leik að þeim eiginleika okkar að er við horfum á eitthvað, þá við sjáum ekki endilega það sem þar er, heldur eitthvað allt annað. Margir aðrir listamenn samtíða honum unnu einnig á þessum nótum. En hann náði á svo fínan máta með glettni og útsjónarsemi að gera áhorfandanum ljóst, að það er ekki alltaf að við sjáum það sem við erum að horfa á.