Forsíða  
1993  
1994  
1995  
1996  
1997  
1998  
1999  
2001  
2002  
2003  
2005  
2006  
2007  
2008  
2009  
   
   

 

magneaa@hotmail.com
Gallerí Ágúst, Reykjavík
,,Á ferð"
<<
fleiri myndir >>

Í herbergi í borginni situr gamall maður með eggið sitt. Lítil börn handleika brothætta muni í öðru herbergi, annarsstaðar í borginni, muni sem hafa ekkert hlutverk lengur annað en að standa í hillu í gömlum skáp,.en nú Í höndum barnanna fá þeir nú nýtt hlutverk.
Við spyrjum oft hvað er líf? Eigum við að gæta þess? Getum við það?
Við getum reynt að hafa postulínsskápinn lokaðan.
Eggið umlykur ungann þar til hann brýtur sér sjálfur leið út úr því. Lítil lífvera yfirgefur skjólið sitt og er komin út í ólgandi lífið þar sem allt er á fleygiferð. Það þarf að leiðbeina nýjum einstakling svo hann geti varast hætturnar allt um kring. Fuglinn útvaldi meðtekur fræðslu af mikilli yfirvegun og hver hugsun og hvert orð er vegið og metið. En getur hann treyst okkur, segjum við honum satt?
Við fylgjumst með ungviðinu taka fyrstu skrefin. Vorgolan umlykur allt og býður upp í lífsins dans. Við vonum að allt fari vel.

Litli fuglinn flaug um himininn bláa með brjóstið litla þanið á móti birtunni. Hann var stjarnan þann dag og skein svo skært að stjörnur alheims bliknuðu... Vindurinn kyssti hann, skýin tættust undurlétt í sundur og hurfu á augnabliki.
En sögurnar okkar enda ekki alltaf vel. Eggið brotnaði, litli fuglinn brotnaði og munirnir í skápnum brotnuðu. Bílstjórinn sá ekki litla fuglinn og ók sína leið. Og yfir öllu hvelfist himininn heiðblár og hljóður, hátt hátt uppi.
Við sitjum eftir með fangið fullt af brotum og reynum í angist að mynda nýja heild með því að púsla brotunum saman, að fá aftur líf í litla stjörnu. Gamli maðurinn veit að dansinn okkar er endalaus og að það skiptir ekki máli hvort kemur á undan, hænan eða eggið. Allt rennur áfram sekúndu eftir sekúndu, en hvert og hvers vegna er alls ekki gott að átta sig á.

Gunnar S. Magnússon, myndlistamaður, er gamli maðurinn, Ísabella Ýrr og Kormákur Logi Hallgrímsbörn eru börnin.